veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir þessar spurningar. Það var nefnt hér áðan að ég hefði mikla reynslu af málefnum sjávarútvegsins en ég vil alls ekki meina það, bara alls ekki. Ég hef lítið komið á sjó. Ég hef reyndar farið mikið með Herjólfi og einhvern tíma sagði ég að ég hefði farið svo oft með Herjólfi að ég gæti líklega fengið tvö ár í sjóferðabókina ef ég myndi telja það allt saman í klukkutímum. Ég veit ekki hvort það dugir mér ef ég ætla að ná mér í einhver réttindi, en þær eru alla vega margar ferðirnar. Það er ekki rétt að ég hafi mikla reynslu af sjávarútvegi, það er bara alls ekki rétt.
En jú, ég hef búið — fyrirgefðu hv. þingmaður, þó að ég svari kannski ekki spurningunni — í sjávarútvegsplássi mjög lengi, áratugum saman, og ég hef oft velt þessu fyrir mér. Ég á engan kvóta, ég veiði afskaplega lítinn fisk, ég tala nú ekki um fisk úr sjó, en ég hef oft velt því fyrir mér hvernig við getum fundið sanngjarna leið til að gera þetta, þ.e. veitt fiskinn í friði og þannig að allir séu sáttir og það séu gjöld af því. Ég er búinn að hugsa þetta áratugum saman og búinn að hlusta á sjómenn, útgerðarmenn, almenning, íbúana og hef reynt að átta mig á því hvernig við förum að þessu, og ég verð að viðurkenna, hv. þingmaður og frú forseti, að ég hef ekki lausnina. Það væri afskaplega gott að geta bara sagt ykkur það núna en ég hef hana ekki. Við höfum lifað á sjónum í árhundruð, við Íslendingar, og þetta hefur haldið í okkur lífinu. Við eigum auðvitað ekki að taka áhættu gagnvart þessari grein, eigum ekki að leika okkur að þessari lífæð þjóðarinnar.