156. löggjafarþing — 38. fundur, 8. maí 2025.
veiðigjald.
351. mál
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svarið. Hækkun á veiðigjaldi hefur verið kölluð leiðrétting og þar hefur því verið borið við að rangri verðlagningu hafi verið fylgt gagnvart útgerðarþættinum og að það geri það að verkum að ekki sé verið að greiða rétt verð í auðlindagjöld. Mig langar til þess að velta upp með þingmanninum: Mætti þá e.t.v. segja að ríkið hefði í þeim skilningi verið að niðurgreiða vinnsluna með því að sætta sig við lægra auðlindagjald en efni stóðu til?