156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:16]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Íslenska ríkið hefur verið blessunarlega laust við að niðurgreiða nokkurn skapaðan hlut í sjávarútvegi um langt árabil. Ég vona að sá dagur komi ekki að við þurfum að byrja á því aftur, eins og var svo algengt fyrir 40 árum. Við höfum ekki verið að niðurgreiða neitt hvað varðar sjávarútveg um langt árabil, þannig að það á ekki við.

Varðandi fleiri spurningar sem hv. þm. Ólafur Adolfsson bar fram: Stærðartakmarkanir — já, ég held að við séum á ágætum stað þar sem við erum með þessa reglu um stærðartakmarkanir útgerðarfyrirtækja. Það þarf auðvitað að styrkja þær reglur eitthvað og halda þeim við eftir breyttu landslagi, en ég tel að þetta sé í ágætishorfi í dag. Hv. þingmaður spurði að fleiru en ég verð að láta það bíða eitthvað.