156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:18]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér erum við að ræða, eins og fram hefur komið, frumvarp hæstv. ríkisstjórnar um breytingu á lögum um veiðigjald, mál sem ber með sér augljós merki flausturs og óvandaðra vinnubragða. Í byrjun langar mig til að lýsa yfir vonbrigðum með ferlið og þær aðferðir sem hæstv. ríkisstjórn hefur haft uppi í jafn mikilvægu máli og hér er á ferðinni. Þar er mér efst í huga það verklag og þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð við undirbúning málsins. Þarna er um að ræða grundvallarbreytingar á veiðigjöldum, breytingar sem koma til með að hafa áhrif á eina mikilvægustu atvinnugrein landsins. Við slíkar aðstæður hljótum við að gera ríkar kröfur til þess að vandað sé til allrar undirbúningsvinnu og ekki síst til samráðs.

Virðulegi forseti. Það er óumdeilt í þessu máli að um er að ræða gríðarlega bratta hækkun á veiðigjaldi sem ríkisstjórnin ætlar sér hér að keyra í gegn á óvenjulega skömmum tíma. Það verður að segjast eins og er að það gengur þvert gegn því sem hæstv. forsætisráðherra hefur sjálf talað um þegar hún hefur lýst vilja sínum til þess að vanda vinnubrögð og til að ná fram breiðri sátt í sjávarútvegsmálum. Hæstv. forsætisráðherra hefur sömuleiðis orðið tíðrætt um mikilvægi þess að gæta gagnsæis og hafa opið samráð við þá sem breytingarnar snerta mest. Ég hlýt þá að spyrja: Hvað varð um þetta gagnsæi? Hvað varð um þetta mikla og ítarlega samráð?

Virðulegi forseti. Meint samráðsferli við framlagningu þessa frumvarps er í raun stórgott dæmi um það hvernig á ekki að standa að mikils háttar breytingum í íslensku samfélagi. Sveitarfélög og aðrir hagsmunaaðilar, sem þetta mál varðar, fengu skammarlega skamman tíma til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, enda var auðvitað síðar gefið til kynna að aðeins væri um sýndarsamráð að ræða. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, lýstu því m.a. yfir í umsögn sinni að þeim hefði verið gefinn óhóflega skammur tími til að greina svo umfangsmiklar breytingar. Hvernig stendur á því að svo mikilvægu hagsmunamáli er ekki gefinn betri umþóttunartími? Eru skilaboð stjórnvalda þau að sjónarmið þeirra sem þekkja atvinnugreinina best eigi hreinlega ekkert erindi inn í þessa umræðu? Eða gæti verið að flaustrið og flumbrugangurinn skýrist af því að brýn þörf hafi verið á því að þyrla upp ryki, að byrgja landsmönnum sýn frá öllum vandræðaganginum sem verið hefur hjá hæstv. ríkisstjórn?

Virðulegi forseti. Ég benti á það nýverið í viðtali að umræðan um sjávarútvegsmál væri lituð af tilfinningum. Ég sagði þá að það væri mikilvægt að við vönduðum okkur í allri framsetningu, bæði á Alþingi og gagnvart almenningi. En hér sjáum við einmitt hið gagnstæða. Þetta mál hæstv. ríkisstjórnar einkennist af tilfinningum, tilfinningarökum og sjálfskapaðri réttlætiskennd, án þess að nægileg efnisleg rök eða greiningar fylgi máli. Þetta sjáum við enn betur þegar við rýnum í þær greiningar sem þó liggja fyrir. Þá er ég ekki að vísa í greiningar hæstv. ríkisstjórnar eða minnisblöð sem þurfti svoleiðis að toga út úr ráðuneytum með töngum. KPMG framkvæmdi ítarlega úttekt fyrir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og benti þar á fjölmörg atriði sem stjórnvöld hefðu átt að skoða betur áður en lagt var af stað í þessa vegferð, fjölmörg atriði. Samkvæmt úttekt KPMG getur hækkunin sem nú er verið að leggja til haft víðtæk áhrif á rekstrargrundvöll fyrirtækja og valdið mikilli óvissu hjá atvinnugreininni í heild sinni, þessari grundvallarstoð íslensks efnahagslífs. Í stað þess að fara ítarlega yfir slíkar úttektir og ábendingar hefur hæstv. ríkisstjórn ákveðið að keyra þetta mál áfram af miklu offorsi og flýti.

Virðulegi forseti. Það er einfaldlega óviðunandi að svo umfangsmikið mál, sem veldur grundvallarbreytingum, sé ekki byggt á nákvæmum greiningum og undirbúningsvinnu, m.a. hefur ekki verið lagt fram ítarlegt áhrifamat varðandi þær breytingar sem frumvarpið felur í sér. Sérstaklega er ámælisvert að áhrifin á brothættar byggðir hafi ekki verið greind með viðhlítandi hætti. Við vitum að sjávarútvegurinn er hornsteinn margra samfélaga, burðarstólpi. Engu að síður virðist hæstv. ríkisstjórn hafa ákveðið að hafa þessi sjónarmið að engu í því augnamiði að keyra þetta mál hreinlega í gegn. Maður hlýtur því að spyrja: Af hverju þessi asi? Af hverju þarf að keyra svo mikilvægt mál í gegn með þessum hætti án þess að stjórnvöld hafi sinnt þeirri skyldu sinni að tryggja upplýsta og yfirvegaða umræðu til að fá fram öll gögn og sjónarmið, greiningar og forsendur til að málið geti talist nægjanlega vel unnið? Þetta frumvarp ber það hreinlega með sér að ríkisstjórnin ætlast til þess að við stimplum málið í gegn áður en svo hefur orðið. Slík vinnubrögð grafa undan trausti á stjórnvöldum og grafa undan trausti á löggjafanum.

Virðulegi forseti. Það er grundvallaratriði að vanda til verka þegar kemur að því að ákvarða skattheimtu — já, ég sagði skattheimtu — sem hefur svo mikil áhrif á atvinnulífið og þar með út í samfélagið, tvöföldun viðbótargjaldtöku á greinina ofan á alla aðra skattheimtu. Sú tilfinning meðal landsmanna sem birtist okkur gjarnan í könnunum, og ég kom inn á hér áðan, tilfinningin um að ágóðanum af sjávarauðlindinni sé ekki réttilega skipt, verður ekki leyst með illa unnum og fljótfærnislegum skattahækkunum. Þvert á móti munu þessar aðgerðir og aðferðirnar við þær auka óvissu, sundrung og tortryggni. Þess mun ekki síst gæta á landsbyggðinni þar sem mótmæli hafa verið hávær gagnvart þessum fyrirætlunum hæstv. ríkisstjórnar. Með þessu er ég ekki að gera lítið úr þessum tilfinningum. En ég harma hreinlega þessi vinnubrögð og þessa fljótfærni, orðasúpuna og réttlætinguna sem hér hefur verið borin á borð. Það eru hroðvirknisleg vinnubrögð.

Virðulegi forseti. Mig langar til að undirstrika að hér er ekki aðeins um að ræða afleiðingar í krónum og aurum heldur verðum við að líta til trausts almennings til stjórnvalda. Þegar stjórnvöld gefa það til kynna að samráð og vönduð vinnubrögð séu bara aukaatriði þá grefur það undan allri umræðu og útkomu hér í þinginu. Við eigum og við verðum að gera betur. Ég vona því að ríkisstjórnin taki sér tíma, að hún staldri við, taki alvarlega gagnrýni frá hagaðilum, hlusti á þau sjónarmið sem hafa komið fram og komi síðan fram með raunverulegt og gagnsætt mat á áhrifum þessa frumvarps. Þá fyrst getum við átt yfirvegaða og upplýsta umræðu um þessi mál.

Virðulegi forseti. Það er ekki til of mikils mælst að viðhafa vönduð vinnubrögð og ítarlegt samráð þegar við tökum ákvarðanir af þessari stærðargráðu sem hafa mætt jafn mikilli mótstöðu.