veiðigjald.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur kærlega fyrir sína ræðu sem var prýðileg, og prýðilega flutt. Það sem ég ætlaði að spyrja hv. þingmann um er þetta með jafnræðisregluna. Ég veit að hv. þingmaður er lögfræðingur að mennt. Hér er auglýsing sem birtist fyrir síðustu kosningar sem ég ætla að lesa upp: Við erum ekki að gera neitt annað en að leiðrétta veiðigjöld. Meiri hluti þjóðarinnar stendur með því að þessar 15 fjölskyldur borgi eðlilega rentu fyrir aðgengi að auðlindinni okkar. — Það var einn stjórnmálaleiðtogi sem sagði þetta fyrir síðustu kosningar og er nú kominn í stjórn. Þá er það jafnræðisregla stjórnarskrárinnar, 65. gr. Í dómi þar um segir að ekki megi þó ganga svo langt í skattheimtu gagnvart einstökum mönnum að þeim sé mismunað á ótilhlýðilegan hátt í samanburði við aðra. Nái skatturinn til fámenns hóps skattborgara kunni það að veita vísbendingu um að of nærri þeim hafi verið gengið, en fjöldinn einn skeri þó ekki úr. — Auðvitað ekki.
Við erum að tala um að skattlagning verði að vera almenn. Það má raunverulega ekki setja mið á einhvern fámennan hóp í samfélaginu og segja: Hefði ég átt að skattleggja Sigurð og Runólf af því þeir eru svo fjandi — afsakið orðbragðið — ríkir? Þarna er stjórnmálaleiðtogi að tala um 15 fjölskyldur og skattlagningin virðist að hennar mati beinast að mjög fámennum hóp. Og það er einmitt það sem Hæstiréttur segir, ég var að lesa úr dómi Hæstaréttar, að þetta megi auðvitað ekki. Það má auðvitað ekki sérgreina hópinn svo mikið að það kallist ekki lengur almenn skattheimta. Hvað segir hv. þingmaður um þetta?