veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Áður en ég fer út í lagalega umræðu um jafnræðisregluna langar mig aðeins að ávarpa nákvæmlega það sem þessi yfirlýsing, eða auglýsing eða hvað það var sem hv. þingmaður vísaði til, inniber — sem er einmitt þessar heitu tilfinningar sem einkenna þetta mál og ég lagði áherslu á í ræðu minni áðan að ekki ætti að gera lítið úr. En þessi tilfinning endurspeglast einmitt í svona yfirlýsingum um að þetta sé réttlætismál, að það eigi að sækja einhverja tiltekna fjármuni í vasa nánar tilgreindra 15 fjölskyldna eða hverjir það eru sem þar eru undir. Þetta er nánast ógeðfellt, svona tal, og lýsir mjög vel þeim tilfinningum sem við er að eiga í þessu máli og því hvernig þetta mál hefur verið unnið og sett fram, af mikilli hörku, í miklum flýti. Gögn hafa ýmist ekki verið lögð fram eða þeim hefur verið haldið frá þeim sem hafa beðið um þau. Það er það sem ég vildi segja til að byrja með.
Varðandi það hvort hægt sé að haga skattheimtu þannig að þú sért í raun að beina henni að fámennum hópi, þá svaraði hv. þingmaður því í raun sjálfur. Væri hægt að sníða frítekjumarkið með þeim hætti að eftir stæðu bara einhverjir nánar tilgreindir einstaklingar sem einhverjir stjórnmálaleiðtogar hefðu einsett sér að ná einhverjum aurum úr vösunum á? Það stenst auðvitað enga skoðun, það segir sig sjálft.