veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar hugleiðingar. Það er auðvitað stórskemmtilegt að taka þetta fyrir á þennan hátt. Ég tel það einnar messu virði, frú forseti, að taka þennan slag svolítið lengra, þ.e. brot á jafnræðisreglu. Miðað við þetta svokallaða frítekjumark, það hversu fáar útgerðir er um að ræða og ýmislegt fleira í þessu, þá tel ég það fullkomlega einnar messu virði að skoða hvort þarna sé gengið mjög nærri 65. gr. stjórnarskrárinnar. Ég óska eftir því að hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir haldi áfram með þessar hugleiðingar okkar í þessar mínútur sem eftir eru.