156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:33]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Í ræðu sinni kom þingmaðurinn svolítið inn á þá orðræðu sem er í kringum sjávarútveginn; orðræðu sem stjórnarliðar hafa fylgt fast eftir og ég hef verið svolítið hugsi yfir. Í orði segja menn að hér sé annars vegar um að ræða leiðréttingu, sem er mjög gildishlaðið orð og auðvelt að gagnrýna, og hins vegar að þetta sé liður í því að búa til sátt. Ég hef spurt: Sátt við hverja? Ég hef svo sem ekki fengið neitt tilhlýðilegt svar við því, enda kannski erfitt að átta sig á því því að sátt hlýtur að ganga út á það að sem flestir séu sáttir.

Ég verð hins vegar að segja alveg eins og er, og mig langar að heyra sjónarmið þingmannsins á því, að þegar um er að ræða orðræðu sem gengur fram með þeim hætti sem stjórnarliðar hafa gengið fram með, jafnvel einstaka ráðherrar, jafnvel hæstv. atvinnuvegaráðherra, þá finnst mér það ekki vera til þess fallið að verið sé að reyna að búa til sátt, hvorki við útgerðina, þessa fjölbreyttu útgerð, þessi 900 útgerðarfyrirtæki og fjölbreytt form þeirra í landinu, né við fólkið sem býr í sjávarþorpunum og sjávarbæjunum, sem lifir fyrst og fremst á sjávarútvegi, og jafnvel ekki heldur við landsbyggðina sem verður auðvitað fyrir miklu meira höggi af þessari auknu skattheimtu en höfuðborgarsvæðið. Ég tek undir það með hv. þingmanni, sem kom inn á það í ræðu sinni, að auðvitað er þetta ekkert annað en hækkun á skatti.

Mig langar að heyra viðhorf hv. þingmanns til þessa, hvort það sé líklegt að hægt sé að búa til sátt þegar keyrt er fram með þessum hætti, af offorsi, og með þessari orðræðu, hvort það sé líklegt til sátta.