veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir andsvarið og fyrir virkilega góðar pælingar, og ég hef sjálf verið á sömu nótum. Varðandi þessa orðræðu, einkum frá stjórnarliðum, í kringum sjávarútveginn — hv. þingmaður tók undir með mér varðandi þetta orðfæri um meinta leiðréttingu og afskrifaði það, eins og ég gerði í minni ræðu — þ.e. að þetta snúi að því að búa til sátt, þá má spyrja: Hvenær verður þessi sátt til? Var t.d. meiri sátt um fyrra kerfi? Ríkti þá mikil sátt um sjávarútvegskerfið?
Ég er sammála hv. þingmanni sem er hugsi yfir þessari orðræðu og tel að hún sé síst til þess fallin að búa til einhverja sátt í samfélaginu. Mér finnst orðræðan hafa verið kaldlynd, mér finnst hún hafa verið yfirlætisfull. Ég verð að segja — út af því að ég missti smá tíma úr umræðunni út af örlítilli pest — að ég var svo hlessa þegar ég kom til baka og sá að það hafði aðeins lifnað yfir þinghúsinu, að stjórnarliðar voru mættir hingað í hús. Ég er þó aðeins hugsi yfir því, og einhverjir gætu kannski upplýst mig um það, hvort hér hafi verið margir stjórnarliðar af landsbyggðinni t.d. Manni hefur þótt, a.m.k. það sem ég hef séð af þessari umræðu, að þetta séu aðallega stjórnarliðar af höfuðborgarsvæðinu sem hafa látið til sín taka sem þekkja kannski ekki nægilega vel til áhrifa af þessum landsbyggðarskatti sem auðvitað er verið að leggja hér á.
En bara svona í blálokin: Nei, það er einfaldlega svar mitt að ég tel ekki að orðræðan, eins og henni hefur verið hagað af stjórnarliðum, af hæstv. ríkisstjórn, af hæstv. ráðherrum, sé til þess fallin að skapa sátt.