veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir síðara andsvar. Ég tek aftur undir með hv. þingmanni varðandi furðuna sem það vekur að reyna að halda því fram að tvöföldun viðbótargjaldheimtu muni ekki hafa nein áhrif. Þetta hlýtur þá að vera eitthvert algjört einsdæmi, að þú getir hækkað skatta og hvað þá svona gríðarlega án þess að það hafi nein áhrif, enda hafa þeir sem því hafa haldið fram ekki neitt fram að færa um það sem þeir halda fram. Varðandi áhrifin sem þetta mun hafa vitum við auðvitað að fjárfesting og nýsköpun, sem hefur verið burðarstólpi í mörgum samfélögum í þessari atvinnugrein, grundvallast einmitt af því sem umfram er, því sem er til skiptanna. Af því höfum við gríðarlega þungar áhyggjur.