156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:40]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir prýðisræðu. Mig langar aðeins til að koma inn á mál er varða skattlagningu, hugtakahringlið sem við höfum átt við að etja hér í þessari umræðu þar sem stjórnarliðar virðast vera uppteknir af því að hér sé um einhvers lags leiðréttingu að ræða án þess að hafa nokkurn tímann bent á villuna sem er verið að reyna að leiðrétta með þessu frumvarpi.

Hv. þingmaður kom sömuleiðis í ræðu sinni inn á þau hroðvirknislegu vinnubrögð sem hér virðast vera alltumlykjandi. Við sjáum bæði þann skamma umsagnarfrest sem umsagnaraðilum var veittur í samráðsgátt. Við fáum upplýsingar um það að undirliggjandi gögn til að glöggva sig á forsendum hafi ekki verið afhent. Raunar kveður svo hart að því að ég veit ekki betur en að það sé búið að kæra það til upplýsinganefndar. Við erum einhvern veginn á þeim stað að það virðist vera sérstakt markmið að halda umræðunni yfirborðskenndri, í svona slagorðastíl, í stað þess að reyna að kafa ofan í þau áhrif sem frumvarpið er líklegt til að hafa á hagaðila. Þegar ég tala um hagaðila er ég ekki bara að tala um þau fyrirtæki sem eru í aflamarkskerfinu heldur sveitarfélögin, starfsfólkið, bara skattgreiðendur alla í ljósi skattsporsins sem er nú hátt í 90 milljarðar á síðasta ári.

Mig langar til þess að spyrja hv. þingmann hver afstaða þingmannsins er til þess hvort skattsporið, heildarskattspor geirans er líklegt til að vaxa, standa í stað eða minnka við þessa breytingu sem hér er lögð til. Síðan langar mig til að spyrja hv. þingmann út í, (Forseti hringir.) af því að hún hafði verið aðstoðarmaður ráðherra áður en hv. þingmaður settist á þing, hvort hún muni eftir viðlíka hroðvirknislegum vinnubrögðum í tengslum við (Forseti hringir.) grunnatvinnuveg þjóðarinnar í jafn umfangsmiklu máli og hér er undir.