veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið. Fyrst, til þess að koma aðeins inn á þessa orðræðu um leiðréttinguna sem ég fjallaði aðeins um í ræðu minni hér áðan, um orðasúpuna og vandræðaganginn varðandi alla þessa umræðu þegar skattheimta kemur síðan bara berlega fram í sjálfu frumvarpinu. Auðvitað vitum við að þetta er skattheimta, þetta ekki bara skattheimta, þetta er tvöföldun á viðbótarskattheimtu. Hv. þingmaður nefnir skort á gögnum og skort á samráði og tímaleysi og það hefur auðvitað verið ótrúlega sérstakt að fylgjast með framgangi þessa máls, að fylgjast einhvern veginn með orðaskiptum þingflokksformanns eins stjórnarflokkanna við hæstv. ráðherra á einhverri ráðstefnu þar sem þau hafa verið að velta fyrir sér: Eru til gögn? Eru þau til staðar? Voru þau búin til eða hvernig var það? Hæstv. ráðherra svarar því til að málið hafi verið svona og svona út af tímapressu en svo í annan fótinn að málið sé virkilega vel unnið af því að það hafi verið unnið á svo góðum tíma. Þessu hefur verið ótrúlega sérstakt að fylgjast með. Varðandi þennan slagorðastíl sem hefur einkennt þetta mál, af því að ég greindi frá því áðan að ég hef aðeins dottið út úr og misst hérna part af umræðunni út af smá veikindum, að eitt sem málið hefur hverfst mjög mikið um eru bara einhverjar auglýsingar eins hagaðila í þessu máli. Það hefur bara allt í einu orðið eitthvert aðalatriði varðandi þessa lagasetningu sem hefur svo gríðarlega mikil áhrif. Mér finnst bara virkilega miður að umræða um þessa eina mikilvægustu atvinnugrein okkar Íslendinga, um sjávarútveg sem er einstakur á heimsmælikvarða, að hún sé ekki á betri stað, hún sé ekki hærra plani, að við höfum ekki getað rætt þetta efnislega. Mér vinnst ekki tími til að koma meira að þessu. Ég geri það í síðara andsvari.