veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka svarið og gott að hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir sé risin úr rekkju eftir smá krankleika. Ein lausnin í því getur auðvitað verið að borða enn þá meiri íslenskan fisk. En mig langar kannski bara til að ítreka spurningu mína varðandi mat hv. þingmanns á áhrifum á heildarskattsporið: Telur hv. þingmaður að þessar breytingar sem hér ramma inn tvöföldun þessarar tilteknu sneiðar af heildarkökunni hafi þau áhrif að heildarkakan vaxi, minnki eða standi í stað? Ég held að fyrir okkur sem ekki koma með beinum hætti að sjávarútvegi sé þetta auðvitað spurningin sem skiptir mestu máli upp á hagsmuni ríkissjóðs: Hverjar eru heildarskatttekjurnar, umfangið, verðmætasköpunin í samfélaginu? Það skiptir miklu máli, meira máli að mínu mati heldur en einhver mjög afmörkuð sneið innan þessarar heildarmyndar sem í ofanálag er orðin, (Forseti hringir.) eins og sagt er í frumvarpinu, ágreiningslaust að er skattur (Forseti hringir.) en svo margir reyna að hanga á að sé eitthvað allt annað. Hvert er mat hv. þingmanns á þessu?