156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:47]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir síðara andsvar. Við gætum verið hér í allt kvöld að diskútera okkar á milli það sem við erum örugglega sammála um varðandi hvaða áhrif það hefur að hækka skattprósentu eða leggja á viðbótargjöld. Það sem við erum að glíma við hér er það að við vitum að vinstri menn trúa því einlæglega að með því að tvöfalda skatta eða þrefalda þá, bæta við 10% eða hvað, þá megi bara setja það inn í excel-skjal og þar með fá þá viðbótarrentu inn í ríkiskassann. Það er bara einhver mantra sem vinstri menn þurfa að afsanna í hvert einasta skipti sem þeir taka við stjórnartaumunum eins og þeir þurftu að gera eftir síðustu hreinu vinstri stjórn, eftirhrunsstjórnina, þar sem þeir hækkuðu alla mögulega skatta og skildu ekkert í því af hverju skatttekjurnar stórjukust ekki. Þessir vinstri menn munu alltaf verða til og við munum þurfa að ræða þetta við þá út í hið óendanlega, er ég hrædd um. Það sem mér finnst vera alvarlegt er það að ef þú ætlar að leggja á skatta, hvað þá tvöfalda þá, þá þurfa í minnsta lagi að vera forsendur til staðar fyrir því og mat á áhrifunum. Það er alger lágmarkskrafa.