156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:48]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Við höldum áfram að ræða veiðigjöldin. Mig langar að segja forseta örlitla sögu af Akranesi. Árið 2014 var mjög gott ár á Akranesi. Það var árið sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan meiri hluta í bæjarstjórn. Það sem var enn ánægjulegra var það að síðar það sumar leituðu fulltrúar HB Granda, eins og hann hét þá, til bæjarstjórnar og óskuðu eftir því að fá að eiga samtal um það að flytja alla bolfiskvinnslu úr Reykjavík og upp á Akranes. Það hafði reyndar verið reynt áður árið 2008 en þá höfðu borgaryfirvöld komið í veg fyrir að af því yrði. Þarna var ákveðið að gera aðra atlögu að því máli og bæði bæjarstjórn og stjórn HB Granda voru einhuga um það mál. Til að lengja ekki söguna mikið meira má nefna að það var lagt af stað með mjög mikla vinnu en við náðum ekki saman um einn hlut og það var fiskþurrkun, sem átti í rauninni að fylgja og náðist ekki samkomulag um.

Því miður varð niðurstaðan sú að árið 2017 ákvað HB Grandi að flytja alla starfsemi sína af Akranesi og í Örfirisey. Það þýddi í rauninni að það var í fyrsta sinn síðan, ja, ætli það hafi ekki verið 1914 eða eitthvað álíka, sem ekki var alvöruútgerð og -fiskvinnsla á Akranesi. Í kjölfarið á þessu og svo sem samhliða hafði verið að myndast tækniklasi á Akranesi og þar var mjög öflugt fyrirtæki sem hét Skaginn 3X og vann að tæknilausnum í sjávarútvegi. Í forsvari þar var mikill vísindamaður sem hafði margar skemmtilegar lausnir sem voru nýlunda í kælingu á fiski. Það var mikill vöxtur í þessari tæknigrein og það má eiginlega segja að hún hafi nær eingöngu þjónustað sjávarútveg eða alla vega að mjög miklu leyti og farið síðan að einhverju leyti yfir í kjúkling. Það verður að segjast eins og er að þetta var gríðarlega gott fyrirtæki og þarna voru vel launuð störf og margt fagfólk að vinna og á endanum var það síðan keypt af Baader. En í kjölfar Covid og fleiri atburða fór þetta félag því miður á hausinn.

Akurnesingar lögðu þó að sjálfsögðu ekki árar í bát og fyrir ekki svo löngu var ákveðið að stofna nýtt fyrirtæki á Skaganum sem heitir Kapp Skaginn og kemur í raun upp úr þessu þrotabúi Baader. Ég vil segja að það hefur hafist vinna við að þróa tæknilausnir, m.a. í sjávarútvegi, og þess vegna langar mig að nefna, af því ég er með umsögnina frá Akraneskaupstað sem tengist því að það er verið að leggja á aukin veiðigjöld, að hér kvartar Akraneskaupstaður undan því að hér sé ansi hraustlega gert og það hafi haft í för með sér að þetta nýstofnaða fyrirtæki mæti verulegum áskorunum í tengslum við það að pöntunarbók þess í rauninni tæmist eða allir fresta sínum aðgerðum. Þetta er eitt af því sem getur gerst ef menn ákveða að leggja of háan skatt á framleiðslufyrirtæki sem endar þá með því að það dregur úr fjárfestingu og þetta er einmitt talandi dæmi um slíkt atriði.