156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:54]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir góða ræðu. Nú veit ég að Ólafur hefur verið í rekstri sjálfur. Hann fór aðeins yfir það áðan og því langar mig að beina spurningu til hans er varðar skatta. Eins og við þekkjum og höfum heyrt hér í dag er ríkisstjórnin ekki búin að gera neinar greiningar. Það hafa aðrir gert. Ég ætla að fá að lesa upp smá upplýsingar sem mér hafa borist frá aðilum sem hafa gert greiningar. Hér stendur, með leyfi forseta:

„Samkvæmt núgildandi fyrirkomulagi jafngildir veiðigjald að viðbættum almennum tekjuskatti á fyrirtæki ríflega 58% virku tekjuskattshlutfalli fiskveiða. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í frumvarpsdrögum mun virkt tekjuskattshlutfall á botnfiskveiðar verða um 75%.“

Mig langar að spyrja: Er slík skattheimta ekki óhófleg á alla mælikvarða?

Af því að ég hef meiri tíma þá langar mig líka að halda aðeins áfram og benda á að í tilviki uppsjávarveiða er skattheimtan enn meiri. Ef við tölum um makríl og miðum við þau gögn sem liggja fyrir í drögunum hefði veiðigjald verið hærra en afkoma veiðanna, þannig að tekjur að frádregnum kostnaði á yfirstandandi ári, raunverulegur hagnaður veiðanna myndi ekki standa undir gjaldinu. Hvað segir hv. þingmaður sem er búinn að standa í rekstri? Hvað þýðir það annað en tap?