veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Eins og ég þekki til rekstrar, nú tek ég það fram að ég hef ekki rekið sjávarútvegsfyrirtæki, myndi ég telja að í rekstrinum væru alla vega töluverðar áskoranir. Auðvitað get ég ekki fullyrt án þess að hafa nákvæma hugmynd um það hvernig þessi rekstur er uppbyggður hvað það myndi þýða í sjálfu sér en í tilfelli sjávarútvegsfyrirtækja myndi ég ætla að þau þyrftu að fjárfesta með reglulegu millibili til að halda sínum atvinnutækjum og vera samkeppnishæf í framleiðslunni. Þá myndi ég reikna með því að það þyrfti meiri fjárfestingargetu en myndi endurspeglast í þessum álögum. Auðvitað gætu þau hins vegar verið með starfsemi sem ekki krefst fjárfestinga eða endilega mikilla fjárútláta. Þá auðvitað gæti komið til greina — en þetta er aldrei góð lausn.