156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:57]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég vil líka benda á að í tilviki síldveiða þá fer virka tekjuskattshlutfallið í 96%. Það sjá allir að þetta er ekki rekstur sem gengur á nokkurn hátt upp þannig að ég held að þetta frumvarp sem við erum að tala um hér sé enn verra en okkur er búið að óra fyrir.

Ég ætla að beina spurningu minni núna að Norðvesturkjördæmi. Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að hækkun veiðigjalds verði mætt með aukinni fjárfestingu í samgöngumannvirkjum. Hefur þingmaðurinn einhverjar upplýsingar um hvað það þýðir fyrir Norðvesturkjördæmi, þ.e. hvaða samgöngumannvirki í Norðvesturkjördæmi eigið þið von á að batni?