156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:58]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka þingmanninum seinna andsvarið. Ég veit ekki til þess að það sé búið að ráðstafa neinu af þessum fjármunum eða velta upp í hvað þeir ættu að fara. Það eina sem ég veit varðandi samgöngumál eða innviðauppbyggingu í Norðvesturkjördæmi eru yfirlýsingar frá hæstv. innviðaráðherra. Hann hefur komið með yfirlýsingu um að hann vilji leggja sitt af mörkum til þess að það verði framkvæmdir í Norðvesturkjördæmi og reyndar væntanlega lofað því víðar. Mín reynsla af því að eiga peninga inni hjá ríkinu eða eitthvað sem ekki er fastráðstafað — ég geri mér ekki endilega miklar væntingar um að það skili sér hratt og örugglega. Það væri þá alla vega nýtt.