veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Þetta er hlutur sem ég kom inn á í minni fyrri ræðu um áhyggjur mínar af því að stjórnvöld líti algerlega fram hjá afleiddum áhrifum frumvarpsins sem eru vægt sagt gríðarleg, að ég held. Öll vöruþróun, tækniþróun, fyrirtæki eins og Skaginn 3X var og hið nýja félag núna í framhaldinu, allt sem hefur gerst vestur á fjörðum og svona, öllu er þessu stefnt í ákveðna tvísýnu. Það þekkja íbúar Akraness og sveitarfélagið þekkir afleidd áhrif býsna vel þegar horft er á þróun mála, bæði hvað varðar útgerðina beint og síðan þjónustufyrirtækin sem hana þjónusta.
En mig langar sem sagt annars vegar að biðja hv. þingmann að dýpka aðeins þessa umræðu um afleiddu áhrifin, bara uppi á Akranesi, með vísan í það sem gerist niður á gamla Skaga. Hin spurningin vaknar í ljósi þess að í fyrra andsvari var spurt hér af hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um ráðstöfun þeirra fjármuna sem á að taka inn með þessum breytingum til innviðaframkvæmda. Því langar mig að spyrja: Þekkir hv. þingmaður, verandi Ólsari, söguna af því þegar vegabótum um Fróðárheiði var lofað í tengslum við sameiningu sveitarfélaga á utanverðu Snæfellsnesi? Ártalinu er stolið úr mér en hv. þingmaður man það kannski. Ég verð kominn með ártalið rétt þegar ég kem upp í seinna andsvar. En þekkir hv. þingmaður þessa sögu og telur hann að við gætum með varúð yfirfært hana (Forseti hringir.) á þau loforð sem landsbyggðinni eru gefin í þessu samhengi núna?