veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir sitt annað andsvar. Ég er nú ekki með ártalið á hreinu en ég get hins vegar staðfest að þetta er rétt sem þingmaðurinn segir og ég veit það. Það liðu ansi mörg ár áður en Fróðárheiðin var tekin í gagnið. Það var í rauninni ekki fyrr en við Íslendingar ákváðum að taka málið í okkar eigin hendur og við bjuggum til okkar eigin samgönguáætlun — af því að Vegagerðin hafði stundað þann leik að við náðum aldrei að koma okkur saman um vegaframkvæmdir. Það var hver höndin upp á móti annarri milli sveitarfélaga þannig að við ákváðum að setjast niður til að ná betri árangri og við bjuggum til okkar eigin samgönguáætlun þar sem allir gengust inn á framkvæmdaröð og það virkaði mjög vel fyrir okkur. Það sem er í rauninni skemmtilegt við þessa samgönguáætlun okkar er að fyrsta samgönguframkvæmdin sem við vildum fá var ekki í okkar eigin kjördæmi. Hún var í rauninni í öðru kjördæmi, á Kjalarnesi, en það var kannski vegbútur sem nýttist okkur öllum. Auðvitað myndi ég náttúrlega segja ef ég stæði hérna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að það skiptir máli hver stjórnar. Þegar kemur að svona málum þá ætla ég að leyfa mér að segja að ríkið hreyfi sig afskaplega hægt.