156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:05]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni sitt annað andsvar. Ég ætla nú bara að segja það strax að ég hef ekki mikla trú á því. Ég ætla ekki að halda því fram að það verði ekki en ég myndi ætla að í flestum tilfellum væri það þannig að þegar ekki er búið að eyrnamerkja peningana nákvæmlega þá verði þeir notaðir í fyrsta brýna verkefnið sem að höndum ber, hvort sem það verður þá skrifað sem skuld eða lán eða hvernig menn vilja tilgreina það. En um leið og það er kominn einhver hali eru menn ekki að flýta sér með framkvæmdir, því miður. Það er alla vega mín reynsla af hlutunum. Við sáum bara hvernig breytingarnar urðu t.d. á framkvæmdum í Gufudalssveit, þar voru t.d. gjörningar sem ég tel að hafi verið mjög skrýtnir. Ég myndi alla vega ekki reiða mig á að þessum peningum, sem þar yrðu myndaðir, yrði varið í Norðvesturkjördæmi.