veiðigjald.
Frú forseti. Hv. þm. Ólafur Adolfsson ræddi um gróskuna í kringum sjávarútveginn og nefndi þar á meðal fyrirtækið KAPP Skaginn sem ég kannast líka aðeins við úr Eyjum, þessar samstæður, og allt gott um það að segja. Það er auðvitað slæmt ef svona fyrirtæki og fleiri sem mætti nefna verði vör við samdrátt í framhaldi af þessari skattlagningu; hvort hv. þingmaður telur svo geta orðið.
Varðandi ráðstöfun fjármunanna — man hv. þingmaður eftir leik hér í gamla daga sem hófst á orðunum: Hvað ætlarðu að gera við peningana sem frúin í Hamborg gaf þér í gær? Man hv. þingmaður eftir þessum leik? Þetta var afskaplega skemmtilegur leikur því að þá gat maður látið hugann reika og sagt hvað maður ætlaði að nota peningana í og það var bíll og hús og allt þetta, og snekkja o.fl. Ætli þetta sé svona á ríkisstjórnarfundum? Telur hv. þingmaður að ríkisstjórnin fari í þennan leik þegar hún er að funda um það hvað hún ætlar að gera við aurana sem fást úr veiðigjaldinu? Það virðist vera fátt sem mönnum dettur ekki í hug að nefna þegar að því kemur að taka ákvörðun um það í hvað á að verja þeim fjármunum.
Hv. þm. Bergþór Ólason nefndi ýmsar samgönguframkvæmdir í Norðvesturkjördæmi og ég nefndi í minni ræðu aragrúa af vegaframkvæmdum og samgönguframkvæmdum í Suðurkjördæmi, þaðan sem ég er. Það er langt umfram þá peninga sem frúin í Hamborg mun nokkurn tíma geta skaffað, a.m.k. næstu árin. En hver er skoðun hv. þingmanns á þessu? Telur hv. þingmaður að ríkisstjórnin (Forseti hringir.) muni leggja þetta í samgöngubætur eða einhverja aðra innviði, t.d. hjúkrunarheimilin eða menntakerfið sem er að þrotum komið?