veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Ég hef svo sem ekki hugmynd um hvernig ríkisstjórnin hyggst verja þessum fjármunum eða í hvaða hlutfalli. Það er auðvitað bara klókt af hálfu ríkisstjórnarinnar að nefna þessa innviðaskuld. Þá ná þau í sjálfu sér tvennu; það vita allir að þörfin er brýn, það er knýjandi að fara í þessi verkefni, og það minnir líka á að fyrri ríkisstjórnir hafa ekki náð að klára sig af því að halda innviðunum við. Ég myndi telja að það væri ágætur pólitískur leikur að bera þetta fram með þessum hætti.
Auðvitað er það síðan þannig að þegar farið verður að ganga eftir þessum peningum þá verður það væntanlega ekkert sérstaklega sundurliðað hvað kemur hvaðan. Ég var dálítið hrifinn af því hvernig Vestfirðingar tóku sig til og stofnuðu sitt innviðafélag og létu taka saman greiningu á því hvað færi mikið af fjármunum til Vestfjarða og hvað Vestfirðir væru að leggja mikið af fjármunum til íslensks samfélags. Það voru mjög áhugaverðar tölur og sköpuðu Vestfirðingum ágæta samningsstöðu í einhvern tíma hvað það varðar að þeir ættu inni fyrir þessari innviðaskuld og í raun bæri að leggja meira af hálfu ríkisins til framkvæmda í Norðvesturkjördæmi en gert er. Ég held að það sé alltaf góð leið að menn horfi á verðmætasköpunina á hverjum stað og í mínum huga er bara skynsamlegt að forgangsraða framkvæmdum þannig að verðmætasköpunin verði sem mest og að þau samfélög fái líka að njóta.