veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum sitt annað andsvar. Ég er ekki hrifinn af þeirri vegferð ríkisstjórnarinnar að skoða þessi viðmið í Noregi. Ég tel að það hefði verið skynsamlegra að horfa til einhvers konar áætlanagerðar hér heima; mér finnst einfaldlega verið að flækja þetta of mikið. Það hefur verið nefnt, og maður sér það í skýringartexta frumvarpsins, að það sé verið að reyna að búa til samfellu þannig að verið sé að veiða fiskinn á sama tíma. Það er samt ekki gefið upp hvaða veiðarfæri er verið að nota. Ég sá a.m.k. frá tveimur aðilum að það var verið að nefna að makríll sem væri veiddur í nót í Noregi væri hins vegar í trolli hér — og það væri ekki samanburðarhæft bara vegna veiðanna.