veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég vil nú byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Mig langar að velta aðeins upp þessari nýju nálgun á viðmið fyrir útreikninga á veiðigjaldi og tala um uppsjávartegundirnar en í þeim á nú að fara að miða við markaðsverð í Noregi. Tökum makríl — verðmæti makríls fer eftir fituinnihaldi fisksins þegar hann er veiddur. Það er alveg ljóst að makríll veiddur á Íslandsmiðum ber ekki sama fituinnihald og makríll veiddur við Noreg. Þar af leiðandi getur Noregur selt inn á dýrustu markaðina þar sem hæsta verðið fæst, í Asíu, en við seljum okkar makríl inn á aðra markaði sem gefa ekki eins mikið verð. Gefur ekki augaleið að þessi samanburður verður mjög rangur þegar maður horfir til töflu í greinargerð frumvarpsins þar sem verið er að sýna fram á mögulega milljarða aukningu í makríl?