veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil bara byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hann kemur inn á tengslin við sveitarfélögin og landsbyggðina og þá aðför sem frumvarpið er, má segja, að landsbyggðinni og að matvælaframleiðslu. Það er eitt að veiða fiskinn en það er annað að vinna hann. Sú verðmætasköpun sem hefur átt sér stað í tengslum við vinnuna og sú tækniþróun sem hefur átt sér stað í sjávarútvegi á undanförnum áratugum hefur fært Ísland meðal fremstu þjóða í heiminum hvað þetta varðar.
Mig langaði aðeins til að spyrja hv. þingmann hvort hann líti svo á að með frumvarpinu séum við hreinlega að spara aurinn og kasta krónunni, með því að leggja þetta fram með þeim hætti sem gert er hér í dag. Ég velti því fyrir mér hvort það geti orðið (Forseti hringir.) til þess að draga úr verðmætasköpun í þessum mikilvæga afla og í þessari auðlind (Forseti hringir.) sem þjóðin á vissulega rétt á að eiga hlutdeild í. Mig langar aðeins að fá að heyra viðhorf hv. þingmanns hvað það varðar.
(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar að ræðutími er ein mínúta.)