veiðigjald.
Frú forseti. Ég biðst velvirðingar á því að hafa farið fram yfir tímann áðan. Þetta er kjarnaspurning, þetta er alger kjarnaspurning og mér þykir verst að geta ekki svarað henni. Ég óttast það talsvert að þetta gæti orðið niðurstaðan, ekki síst þegar ég hugsa um sveitarfélag eins og Langanesbyggð þar sem mér sýnist allverulegur hluti útsvarstekna sveitarfélagsins vera í hættu. En ég get ekkert fullyrt um það enn þá. Ég get séð ákveðin dæmi í ákveðnum sveitarfélögum þar sem mér líst ekki á blikuna en um heildaráhrifin get ég lítið fullyrt vegna áðurnefnds skorts á alvörugreiningu. Ég myndi ekki þora að fara fram með svona mál byggt á tilfinningunni sem ég hef, eingöngu á tilfinningunni. En mér sýnist meiri hlutinn hins vegar algerlega óttalaus að vaða fram á sviðið ríðandi blindum hesti með engar greiningar, ekkert landakort, engan vegvísi.