156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:28]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Maður heyrir það svolítið utan af sér, sérstaklega þegar maður fer um sitt kjördæmi, sem í mínu tilfelli er Norðausturkjördæmi, að hér sé bara komin svokölluð borgarríkisstjórn, borgarsinnuð ríkisstjórn sem sjái í raun ekki mikið út fyrir þann radíus sem er rétt í kringum höfuðborgina. Það er mikið áhyggjuefni því að það er jú ákvörðun að halda byggð í landinu. Á meðan sú ákvörðun er á jákvæðu nótunum þá ber okkur líka að styðja við byggð í landinu.

Hv. þingmaður kom inn á skort á gögnum í sínu máli. Nú hafa sveitarfélögin m.a. tekið sig saman og látið vinna fyrir sig ansi miklar upplýsingar í tengslum við áhrif þessa frumvarps á rekstur sveitarfélaga. Nú erum við ekki að horfa á stórútgerðir, við erum að horfa á rekstur sveitarfélaga og áhrifin sem þetta kann að hafa, fari þetta óbreytt í gegn, (Forseti hringir.) á rekstur sveitarfélaga og þar af leiðandi á framtíðaratvinnusköpun og atvinnutækifæri á landsbyggðinni. Ef hv. þingmaður gæti aðeins farið betur yfir það með okkur.