veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans ræðu hér. Nú eru líklega mestu áhrifin af þessari skattahækkun ríkisstjórnarinnar, einni af mörgum skattahækkunum sem eru á fyrirtæki og almenning í landinu, í Norðausturkjördæmi. Það er alveg ljóst að þetta er ígildi þess að þetta sé 70–80% tekjuskattshlutfall sem er gríðarlega hár skattur. Ég held meira að segja að vinstri mönnum finnist nú vel í lagt að leggja 70–80% tekjuskatt á einhverja atvinnugrein, hver sem hún er.
En telur hv. þingmaður að þessar aðgerðir muni ekki koma niður á veiðum og vinnslu í hans heimasveitarfélagi, Norðurþingi, þar sem er öflug vinnsla og veiðar, og sérstaklega kannski í ljósi nýjustu fregna af blikum á lofti í atvinnuástandinu þar?