veiðigjald.
Ég ætla að hafa svarið stutt. Jú, ég held að það væri þannig. Ástæðan fyrir því að ég ætla að hafa svarið stutt er að ég ætla að þiggja þær dyr sem hv. þm. Jens Garðar Helgason opnaði áðan og halda áfram þar. Það sem verið er að vísa til hér í pontu og er ekki nefnt með nafni er sú staða sem komin er upp varðandi mögulega rekstrarstöðvun hjá PCC á Bakka. Þar starfa, ef ég man rétt, á bilinu 130–140 manns sem þýðir þá að með mökum, börnum og öðrum má væntanlega reikna þá með snertifleti við 300 manns, plús óbein störf, sem eru allir þeir verktakar sem hafa mikla vinnu af því að sinna þessu fyrirtæki, þannig að nú þurfum við hér í þessum sal að fylgjast vel með og vera tilbúin að hjálpa til með hvaða leiðum sem við getum. Vissulega eru sveitarstjórnarfulltrúar í Norðurþingi að fylgjast vel með og eru í góðu samtali við rekstraraðila PCC og eigendur. Það er gott. En þeir þurfa örugglega á því að halda að við sýnum málinu athygli og leggjum okkar að liði sé eftir því óskað.