veiðigjald.
Virðulegur forseti. Það er augljóst að skipulagsleysi hæstv. ríkisstjórnar varðandi raunheima og þinglega meðferð mála veldur því að hér er boðað með mjög skömmum fyrirvara til þessa laugardagsfundar, þvert á önnur áform sem fólk hafði réttilega geta gert ráð fyrir. En gott og vel.
Virðulegi forseti. Ég verð að fá að segja að í því ljósi að það er meiri hlutans og hæstv. ríkisstjórnar að boða til þessa fundar þá finnst mér lágmark að ráðherrar, og þá sérstaklega þeir sem hafa aðkomu að því máli sem hér er til umræðu, sýni þinginu þá virðingu að mæta til þessa þingfundar.