156. löggjafarþing — 39. fundur,  10. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[10:02]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Hildar Sverrisdóttur. Staðan er sú hvað fjarveru ráðherra varðar að það hefur auðvitað verið upplýst um það að atvinnuvegaráðherra er staddur erlendis en ég vil biðja virðulegan forseta um að athuga hver gegnir fyrir hæstv. atvinnuvegaráðherra. Sá ráðherra ætti að sjálfsögðu að vera hér í þingsal. Sömuleiðis tel ég að forseti ætti að kalla til hæstv. fjármálaráðherra, sem er auðvitað sá sem heldur um budduna sem hætt er við að hér sé verið að tala fyrir að muni minnka í, verði frumvarpið samþykkt eins og það liggur fyrir. Ég geri athugasemdir við það að hér sé ráðherrabekkurinn tómur og í því samhengi, eins og ég segi, er engin afsökun sem heldur að hæstv. atvinnuvegaráðherra sé erlendis. Það er ráðherra sem gegnir fyrir hann. Ég vil biðja virðulegan forseta að upplýsa okkur um hver það er sem gegnir og er þá fjarverandi við þessa umræðu í dag.