veiðigjald.
Virðulegi forseti. Mig langar bara að koma hér upp og taka undir orð kollega minna, hv. þingmanna Hildar Sverrisdóttur og Bergþórs Ólasonar, varðandi fjarveru ráðherra. Það er mikilvægt í þessari stóru umræðu, jafnvel einu stærsta máli kjörtímabilsins, að hér sé ráðherra staddur og ef hann kemst ekki þá a.m.k. sé staðgengill ráðherra hér til að hlusta á þessa umræðu. En ég fagna því að hér séu þó nokkrir þingmenn mættir í salinn til að taka þátt í umræðunni og ég bind vonir við að við fáum einmitt þátttöku stjórnarliða núna í ræðum dagsins.