varamenn tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Eyjólfur Ármannsson verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi, Bragi Þór Thoroddsen.
Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Guðrún Hafsteinsdóttir, 2. þm. Suðurk., verði fjarverandi á næstunni. Því tekur Gísli Stefánsson sæti á Alþingi en hann er 2. varamaður á lista flokksins í kjördæminu og víkur þá 1. varamaður á lista, Ingveldur Anna Sigurðardóttir af þingi en hún hefur boðað forföll.
Bragi Þór Thoroddsen hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.