Óyfirlesin bráðabirgðaútgáfa frá talgreini.

156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:02]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hafa bréf frá félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 383, um kostnað vegna jafnréttismála og kynjafræði, og á þskj. 398, um túlkaþjónustu í atvinnumálum, báðar frá Snorra Mássyni. Einnig hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 13, um ungmenni, frá Rósu Guðbjartsdóttur. Þá hafa borist bréf frá forsætisráðherra og atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 384 og 381, um kostnað vegna jafnréttismála og kynjafræði, frá Snorra Mássyni.