viðvera stjórnarliða á þingfundum.
Virðulegi forseti. Ég vil fyrir hönd stjórnarandstöðunnar náðarsamlegast beina því til forseta að gengið verði úr skugga um þegar boðað er til þingfunda að tryggt sé að stjórnarmeirihlutinn mæti á þá þingfundi svo hægt sé að sinna þeim verkefnum sem koma upp á þingfundi og þingstörf geti gengið greiðlega fyrir sig. Við í stjórnarandstöðunni teljum að það sé kannski lágmarkskrafa sem sett er hér þegar boðað er til þingfunda. Að auki vil ég fá að nefna, frú forseti, að það er auðvitað lágmarkskurteisi og virðing sem hæstv. ráðherrar sýna þingheimi að mæta til þingfundar þegar mál sem undir þá heyra eru til umræðu. Annað er með ólíkindum og mikið virðingarleysi. Ég beini því til forseta að ganga úr skugga um að það endurtaki sig ekki.