156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:04]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil taka undir orð Hildar Sverrisdóttur sem fyrir hönd okkar í stjórnarandstöðunni óskaði eftir því að það yrðu greidd atkvæði um til hvaða nefndar málinu yrði vísað. Mig langar til að nefna þetta sérstaklega vegna þess að það átti ekki að koma stjórnarliðum á óvart að þessi ósk kæmi fram. Ég get sagt fyrir mig að ég var búinn að haga orðum mínum þannig í ræðum allan daginn að það væri ekki á vísan að róa með að vísunin yrði til þeirrar nefndar sem hæstv. ráðherra lagði til, enda er hér um svo augljóst skattamál að ræða að það er meira að segja skrifað skýrum stöfum í frumvarpinu. Það lýsti einhverjum leiðinlegum hroka í garð þingsins og starfsins sem á sér stað hér í salnum að hv. stjórnarþingmenn og þeir sem þeim hópum stýra skyldu ekki gæta þess að mönnun væri með forsvaranlegum hætti þannig að hér væri hægt að vinna þau verk sem er líklegt að komi til á þingfundi eins og haldinn var síðastliðinn laugardag.