156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

vviðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:07]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Mig langar að koma hingað upp og taka undir orð félaga minna í stjórnarandstöðunni varðandi boðun þessa fundar á laugardaginn. Það er okkur í Framsókn vissulega ljúft og skylt að mæta í vinnuna og gerði sú sem hér stendur það síðastliðinn laugardag. Mig langar samt sem áður að bera það upp við hæstv. forseta að það er samt ágætt að fá ágætisfyrirvara á boðun slíks fundar, aðeins meira en sólarhring þar sem við landsbyggðarþingmenn, sem náum ekki að fara heim til okkar dag hvern eftir vinnu að hitta fjölskyldu okkar, nýtum oft helgarnar til að verja tíma með þeim og ég veit að það voru ansi margir landsbyggðarþingmenn sem breyttu sínum áætlunum vegna þessarar fundar.

En varðandi mætingu þingmanna stjórnarmeirihlutans síðastliðinn laugardag er það rétt, þeir mættu ágætlega við upphaf þingfundarins. Hins vegar var það þannig að þegar kom til atkvæðagreiðslu þá þurfti í tvígang að fresta þingfundi hér til að stjórnarliðar gætu smalað hingað í þingsalinn, sem náðist því miður ekki og þess vegna er þetta mál aftur á dagskrá í dag.