156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:08]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Þegar boðað er til aukavinnu alls staðar í samfélaginu þá mæta menn. Ég minntist á það á laugardaginn, þegar við vorum boðuð á fyrsta laugardagsfund sem ég man eftir í mörg ár, að þá var enginn á ráðherrabekkjunum. Við erum með 11 ráðherra. Við erum með 11 — já, það má hlæja að því, hæstv. ráðherra. Það eru 11 ráðherrar í ríkisstjórn Íslands og þar af tíu þingmenn og við sáum einn sem kom hingað til okkar í mýflugumynd á laugardaginn var. Það var boðað til aukavinnu og þetta var mæting ráðherraliðsins. Þetta var mætingin, enda fór það svo að þau gátu ekki einu sinni boðað til atkvæðagreiðslu.