viðvera stjórnarliða á þingfundum.
Frú forseti. Mig hefur nú oft langað til að nota tækifærið undir þessum lið og hrósa forseta fyrir fundarstjórn. Mér finnst fundarstjórn hér bara til stakrar prýði og fyrirmyndar í alla staði og sama hver situr í stólnum. Ég hef setið marga ólíka fundi víðs vegar í félagasamtökum og þar hefur oft verið mjög vond ef nokkur einasta fundarstjórn. Það er kannski sérstaklega t.d. í húsfélögum. Það hefur bara verið gersamlega fyrir neðan allar hellur. Hér finnst mér fundarstjórn vera til fyrirmyndar og okkur til sóma og mig hefur langað — af því að mér finnst oft neikvæður tónn fólki og ég vil bara taka upp (Forseti hringir.) hanskann fyrir forseta. Takk fyrir mig. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)