viðvera stjórnarliða á þingfundum.
Virðulegur forseti. Við erum hér aftur saman komin samkvæmt starfsáætlun. Við komum hér saman á laugardaginn vegna þess að forseta fannst ástæða til að gera breytingar á starfsáætlun og klára umræðu. Eins og fram kom þá furðuðum við okkur á mætingarleysi á ráðherrabekknum. Við sem áttum eftir að halda ræðu hefðum gjarnan viljað eiga samtal við ráðherra um það mikilvæga mál sem hér lá fyrir og fá jafnvel andsvör eða einhver viðbrögð frá hæstv. ráðherra. Við fengum reyndar þau viðbrögð frá hæstv. forseta að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hefði verið gert viðvart og að hann væri á leiðinni. Ég held að það hafi verið rétt fyrir 11 eða rétt um kl. 11 sem við fengum þessi viðbrögð en það bólaði ekkert á hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sem þá gegndi fyrir hæstv. atvinnuvegaráðherra á laugardaginn, allan laugardaginn meðan á þingfundi stóð. Því spyr ég: Hvar var hæstv. ráðherra? Var hann svona lengi á leiðinni?