156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:12]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég vildi bara hnykkja á því, sé það einhverjum vafa undirorpið, að það er alvanalegt þegar er verið að greiða atkvæði um það í hvaða nefnd mál fara að það sé atkvæðagreiðsla um það á næsta þingfundi. Þegar viðverukerfi þingsins er skoðað þá voru fleiri stjórnarliðar í húsi en stjórnarandstæðingar þegar þingfundi var slitið. Það er ekkert nýtt við þetta, ekki neitt. Aðalatriðið er að við náum að klára 1. umræðu veiðigjaldanna. Aðalatriðið er að þingið fái núna þetta mál inn í nefnd þar sem hægt er að fara yfir þær fjölmörgu athugasemdir, skoðanir og rök, af því að það er alltaf þannig, sem fyrir liggja í málinu, kalla til hagaðila og halda áfram í þessari vinnu til þess að þjóðin upplifi það loksins í eitt skipti fyrir öll að hér verði greidd réttlát veiðigjöld til framtíðar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)