156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:14]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Frú forseti. Þessi laugardagsfundur var um margt ágætur en auðvitað söknuðum við þess að hafa ekki ráðherra hér með okkur. Ráðherra sem gegnir fyrir atvinnuvegaráðherra og er sjálfur hæstv. fjármálaráðherra átti náttúrlega fullt erindi inn á þennan fund. Mér þótti miður að heyra af forsetastóli ítrekað að verið væri og búið væri að gera ráðstafanir til þess að hæstv. ráðherra gæti komist hingað. Spurningin er: Var hæstv. ráðherra utan bæjar eða hvers vegna komst hann ekki hingað til fundar? Ef það er svo að hann hefur ekki verið utan bæjar eða utan seilingar, eins og maður segir, þá er náttúrlega mjög vont ef forseti hefur vitað af verustað ráðherra og ekki gert ráðstafanir í tíma til þess að hann kæmi hingað og enn verra að segjast hafa gert það. Það þykir mér vont vegna þess að við erum hér í starfi sem byggist á gagnkvæmu trausti og við verðum að geta treyst því að forseti þingsins sé forseti þingsins.