viðvera stjórnarliða á þingfundum.
Virðulegi forseti. Ég vildi fá að koma hérna upp og taka undir með hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni. Við höfum bæði fengið þau ótrúlegu tækifæri sem felast í því að fá að sitja á ráðherrabekknum og í framkvæmdarvaldinu og ég man bara eftir því þegar forseti húðskammaði okkur fyrir að kíkja aðeins út úr húsi ef verkefnin voru þannig þegar 1. umræða var í gangi. Þetta er það samtal sem þingið hefur við hæstv. ráðherra um þau frumvörp sem koma hingað. Því er algjört lágmark að hæstv. ráðherrar taki þátt í þeirri umræðu, séu hér til viðtals við hv. þingmenn um málið, svari spurningum, vangaveltum og séu þátttakendur í því að láta ekki eins og Alþingi og löggjafarvaldið sé einhver stimpilpúði. Mér finnst það algjört lágmark að framkvæmdarvaldið hér og hæstv. ráðherrar í þessari ríkisstjórn fari aðeins að endurskoða afstöðu sína gagnvart Alþingi og framkomu sína með því að sitja hér undir umræðum og taka þátt og að hæstv. forseti taki þátt í því með öllu þinginu.