viðvera stjórnarliða á þingfundum.
Virðulegur forseti. Ég tek undir þetta. Ég spurði hér áðan: Hvar var hæstv. ráðherra? Ég held að það sé rétt að við spyrjum núna: Hvaða fyrirskipunum eða óskum beindi hæstv. forseti til hæstv. ráðherra síðastliðinn laugardag? Við höfum heyrt hvernig forsetar tóku á þeim og sögðu þeim að þeir þyrftu að vera hér við umræðu, sem er auðvitað eðlilegt og hluti af hinu lýðræðislega ferli. En þegar ég labbaði yfir í Smiðju um hádegisbil á laugardaginn þá kemur það í ljós að þar situr hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sem gegndi störfum atvinnuvegaráðherra. Hér var búið að margkalla eftir hæstv. ráðherra í þingsal til að eiga samtal við þingheim, en forseti sagði að hann væri upptekinn í opinberum erindagjörðum. Hann var sem sagt upptekinn á vinnufundi Viðreisnar. Er það mikilvægara en að sinna þingheimi? Ég spyr, hæstv. forseti.