viðvera stjórnarliða á þingfundum.
Í tilefni þessarar umræðu er rétt að það komi fram að þegar óskir komu fram hér við umræðuna á laugardaginn um að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kæmi til fundarins var þeim komið rakleiðis til ráðherra. Nú hefur forseti ágætisyfirsýn yfir þennan sal en ég hef ekki yfirsýn yfir það hvar fólk heldur sig þegar það er ekki í þingsal. En skilaboðunum var sannarlega komið til skila.
Hitt sem forseta langar til að nefna hér er að það hefur verið venjan á Alþingi að þegar það kemur ný tillaga fram um vísun í nefnd þá er þeirri afgreiðslu frestað til næsta fundar svo að allir geti verið viðstaddir sem hugsast getur og eru á staðnum. Þannig hefur það verið hér árum, ef ekki áratugum saman.