viðvera stjórnarliða á þingfundum.
Frú forseti. Ég vil nú fyrst þakka hæstv. forseta fyrir ákaflega góða fundarstjórn. Það sem mér finnst furðulegt hér í umræðunni, það er hvað Íslandsmeistararnir hér í 1. umræðu eru óánægðir og eru að kvarta undan þátttökuleysi ráðherra. Ef það er farið yfir ræður hæstv. ráðherra þá tók hún 12 sinnum til máls. Það er ekki hægt að ætlast til þess að ráðherrar sem þurfa að sinna margvíslegum störfum sitji hér undir þessu Íslandsmeti, sem var nú ansi staglkennt eins og margar ræðurnar hér, svo að dögum skiptir. Þetta tók nánast heila viku. Mér finnst að stjórnarandstaðan mætti vera svolítið glaðari í sinni, vera ánægðari með sitt í stað þess að vera hér að sýna óánægju í garð ráðherra sem tók virkan þátt í umræðunni og hefur skýrt þetta mál rækilega vel fyrir þjóðinni.