156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:22]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég þakka ykkur fyrir að reyna að útskýra þetta mál fyrir okkur en það er ekki hægt að draga aðra ályktun af orðum hæstv. forseta en að sannarlega hafi beiðni um viðveru verið komið til hæstv. fjármálaráðherra, eins og svo oft gerist gagnvart ráðherrum sem þá eiga jafnan ekki annan kost en að mæta, séu þeir í einhverri aðstöðu til, en í þessu tilviki hafi hæstv. ráðherra neitað að mæta, hafi verið staddur hér í húsakynnum Alþingis en neitað að mæta til umræðunnar. Þá hlýtur eðlileg næsta spurning að vera til hæstv. forseta, og varðar augljóslega fundarstjórn forseta: Hvernig mun hæstv. forseti bregðast við því?

Loks vek ég athygli á því að þrátt fyrir meinta hefð um að fresta ætíð atkvæðagreiðslu um til hvaða nefndar mál skuli fara þá reyndi hæstv. forseti ítrekað að taka málið til afgreiðslu þann sama dag en gekk ekki. Hvers vegna? Vegna þess að stjórnarliðar voru ekki á staðnum.