viðvera stjórnarliða á þingfundum.
Virðulegi forseti. Það sem við í stjórnarandstöðunni höfum kannski haft hvað mestar áhyggjur af undanfarið er einmitt virðing gagnvart þinginu. Það virðist leynt og ljóst verið að breyta þinginu í stimpilpúða fyrir framkvæmdarvaldið. Það er nú öllu lokið ef það er orðið þannig að hæstv. ráðherrar telji sig ekki þurfa að sitja hér við 1. umræðu, sem er eina umræða af þremur sem ráðherrarnir fylgja eftir og bera ábyrgð á. Það er eina umræðan. Að mæta í andsvör við fimm þingmenn í svona stóru máli, er það öll virðingin sem hæstv. ríkisstjórn ætlar að sýna þessu máli og Alþingi Íslendinga? (Gripið fram í.) Einmitt, bara þrjú andsvör við framsöguræðu. Þetta er algerlega óboðleg framkoma. Við þurfum að bera virðingu fyrir þinginu. Þetta er eina umræðan. Það að hæstv. ríkisstjórn geti ekki setið undir einni umræðu í sínum eigin málum, einu af sínum stærstu málum, er til skammar.